Forseti (Sturla Böðvarsson)
:
Vegna ræðu hv. 8. þm. Reykn. vill forseti geta þess að forsetar þingsins reyna af þolinmæði að stýra fundum og halda uppi dagskrá í góðri samvinnu við forustumenn þingflokka og ég vænti þess að svo verði áfram og við getum haldið áfram dagskrá og umræðum eftir því sem tilefni gefst til.