Lokun fæðingardeilda

78. fundur
Þriðjudaginn 11. febrúar 1992, kl. 13:37:00 (3337)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Vegna þess að nokkuð er um liðið síðan slíkur fyrirspurnatími var síðast á dagskrá vill forseti minna á hvernig tilhögun hans verður.
    Gert er ráð fyrir að hann taki um hálftíma. Samkvæmt þingsköpum hefur fyrirspyrjandi tvisvar sinnum þrjár mínútur og ráðherra tvisvar sinnum fimm mínútur en forseti væntir þess eindregið að þingmenn og ráðherrar fullnýti ekki þann rétt til ræðutíma sem þeim er áskilinn í þingsköpum því að þá komast aðeins tveir þingmenn að á þeim hálftíma sem okkur er skammtaður. Fyrirkomulag umræðunnar verður þannig að þingmenn kveðja sér hljóðs með því að rísa úr sæti til þess að auðvelda forseta yfirsýn yfir þá sem biðja um orðið.
    Forseti vill ítreka þá ósk sína að fyrirspurnirnar verði stuttar, um eitt eða tvö efnisatriði, og ekki síður að svör ráðherra verði stutt og hnitmiðuð. Hefst nú fyrirspurnatíminn.