Anna Ólafsdóttir Björnsson
:
Virðulegi forseti. Okkur hæstv. heilbrrh. ber saman um tölur og ég vil taka það fram að þó að framfærsluvísitala yfir landið í heild hækki ekki um meira en 0,25% og 0,35% allt í allt, þá þýðir þetta að þessi hækkun leggst misþungt á fólk. Hún leggst þyngst á sjúklinga, á aldraða og á barnafólk og því hefur ekki verið hnekkt og við þessu hef ég ekki fengið svar nema að einhver lækkun er á gjöldum fyrir lífeyrisþega en það eru hækkanir á barnafólk og það er lækkun á barnabótum og það eru ýmiss konar aðrar hækkanir sem vega þarna margfalt á móti.