Lánasjóður íslenskra námsmanna

78. fundur
Þriðjudaginn 11. febrúar 1992, kl. 16:29:00 (3380)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Með sama hætti og venja er var komið skilaboðum til formanna þingflokka. Þetta kom enn fremur fram á fundi með formönnum þingflokka í gær þar sem óskað var eftir þessari umræðu í dag. Þá skýrði forseti frá því að þessi umræða gæti ekki farið fram í dag því forseti hafði ekki ætlað sér að hafa hér utandagskrárumræðu vegna þeirra mála sem voru á dagskrá, þ.e. það frv. sem átti nú þegar að vera hafin umræða um. Þá kom í ljós að hæstv. heilbrrh. gat ekki verið við þessa utandagskrárumræðu nema í dag og þess vegna hliðraði hæstv. menntmrh. til og þannig að umræðan gat orðið með þeim hætti sem hér hefur farið fram í dag í góðu samkomulagi. Öllum formönnum þingflokka var tilkynnt um þetta í morgun eins og oft gerist þegar utandagskrárumræða fer fram. Forseti ræður náttúrlega ekki við það ef ekki hefur náðst í viðkomandi aðila. Gerðar voru ráðstafanir til að ná í einhverja aðra fulltrúa þingflokka þannig að ég held að það sé alveg öruggt að allir þingflokkar hafi vitað að þessi utandagskrárumræða stóð til.