Lánasjóður íslenskra námsmanna

78. fundur
Þriðjudaginn 11. febrúar 1992, kl. 16:32:00 (3382)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Forseti getur alveg tekið undir orð hv. 4. þm. Austurl. og er alveg sammála því sem kom fram í hans máli. En hér var um það að ræða að taka tillit til óska fulltrúa stjórnarandstöðunnar sem höfðu samband við forseta út af þessari væntanlegu umræðu um lánasjóðinn sem hæstv. ráðherra bíður nú eftir að geta hafið. Það er ekki að vilja eða ósk forseta að umræðunni verði frestað með þessum hætti í dag. Forseti hafði gert ráð fyrir því að þeirri umræðu yrði haldið áfram í dag svo lengi sem þurfa þætti og ásamt því að henni yrði haldið áfram í kvöld ef henni yrði ekki lokið í dag. En því var mótmælt af fulltrúum stjórnarandstöðunnar á fundi með forseta í gær og þess vegna hefur ekki verið gert ráð fyrir fundi í kvöld en forseti er alveg tilbúinn að hafa kvöldfund ef þingmenn hafa áhuga á því og er vel hægt að breyta því.