Auglýsingakostnaður fjármálaráðuneytis

80. fundur
Fimmtudaginn 13. febrúar 1992, kl. 11:21:00 (3448)

     Gunnlaugur Stefánsson :
    Frú forseti. Þær upplýsingar, sem hér liggja fyrir og hæstv. fjmrh. hefur gefið varðandi kostnað við kynningarstarf á vegum fjmrn., er mjög auðvelt að gera tortryggilegar. Ég held að hæstv. fyrrv. fjmrh. hafi unnið gott starf í því að kynna málefni ráðuneytisins og ég vil vara við því að slíkar upplýsingar, jafnnákvæmar og þær eru hér, verði notaðar í þeim tilgangi að gera slíkt starf torkennilegt. Við vitum að það kostar fé að standa undir kynningarstarfi og allt kynningarstarf á vegum Stjórnarráðsins verður að stórefla. Ég vil vara enn og aftur við því að svona upplýsingar verði til þess að úr slíku starfi verði dregið.