Gunnlaugur Stefánsson
:
Frú forseti. Ég tel ekki ástæðu til að gera athugasemd við það svar sem hæstv. forsrh. gaf hér og tel það alls kostar fullnægjandi en það er samt tilefni til að athuga hvort ekki þurfi að setja einhverjar lágmarksviðmiðunarreglur um það hvernig þingmenn, ráðherrar og æðstu embættismenn þjóðarinnar umgangast boð af ýmsu tagi. Við Íslendingar höfum verið ansi frjálslegir í þessum efnum, t.d. að það hefur verið hefð og venja að ráðherrar þiggi boð um laxveiðar á sumrin og forsrh. hefur upplýst að þingmenn hafi þegið boð um að liggja á sólarströndum í Sovétríkjunum o.s.frv. Allar þessar upplýsingar kalla á það að ræða þetta nánar og jafnvel setja um þetta einhverjar viðmiðunarreglur.