Menntamálaráðherra (Ólafur G. Einarsson)
(andsvar)
:
Herra forseti. Ég notaði orðið áherslumunur vegna þess að það orð notaði hv. varaformaður menntmn. í umræðunum í síðustu viku. Þess vegna notaði ég orðið áherslumunur. Ég hef ekki heyrt hina yfirlýsinguna að hér sé grundvallarmunur. Vel má vera að einhver hafi gefið hana en þá hefur það alla vega ekki verið formaður flokksins.