Viðbrögð ríkisstjórnarinnar við atvinnuleysi í landinu

83. fundur
Þriðjudaginn 18. febrúar 1992, kl. 15:58:00 (3558)

     Forseti (Gunnlaugur Stefánsson) :
    Eins og tilkynnt var í upphafi fundar hefst nú utandagskrárumræða um viðbrögð ríkisstjórnarinnar við því atvinnuleysi sem orðið er í landinu. Samkomulag hefur orðið milli þingflokka um að umræðan standi í tvær klukkustundir. Ræðutími skiptist þannig að hver

þingflokkur hefur 20 mínútur til umráða en málshefjandi og viðkomandi ráðherra tíu mínútur að auki í lok umræðunnar.
    Hefst nú umræðan og tekur fyrstur til máls hv. 4. þm. Norðurl. v.