Viðbrögð ríkisstjórnarinnar við atvinnuleysi í landinu

83. fundur
Þriðjudaginn 18. febrúar 1992, kl. 18:27:00 (3581)

     Forseti (Gunnlaugur Stefánsson) :
    Enn og aftur að gefnu tilefni vegna ávirðinga hv. 5. þm. Suðurl. um að ég hafi brotið þingsköp og að ég hafi gert mistök með fundarstjórn. Ég tel að ég hafi stjórnað fundi hér fram að þessu í krafti þingskapa og samkomulags sem þingflokkar gerðu um þá umræðu sem hér fór fram. Ég tel mig skyldugan að gæta þess að samkomulag sé haldið og þeim tíma, sem samkomulag náðist um að mundi skiptast jafnt á milli flokkanna, yrði ekki

misskipt.