Viðbrögð ríkisstjórnarinnar við atvinnuleysi í landinu

83. fundur
Þriðjudaginn 18. febrúar 1992, kl. 18:28:00 (3582)

     Ólafur Þ. Þórðarson (um þingsköp) :
    Herra forseti. Ég get tekið undir það með hæstv. sjútvrh. að forsetadæmið mun ekki til í þingsköpum. Það er eins með fortíðarvandann, hann er ekki til í orðabók Blöndals og er þó notaður í þingsölum og væri hugsanlegt að semja um að bæði féllu út. Hitt þykir mér þó langalvarlegast ef það eru fortíðarinnar þingsköp sem eru komin í gildi. Hér vitnaði hæstv. forseti, sem er nýkosinn á þing, í þingsköpin eins og þau voru árið 1985 og fyrir 1985 og taldi að á grundvelli þess hvernig þingsköpin voru fyrir 1985 væru efni til þess að standa hér upp og halda fróðleiksræðu yfir þingmönnum. Ég bjó við það þegar ég fór á þing árið 1979 að menn notuðu þingsköpin sem voru þá í gildi en ekki þau sem voru í gildi 1974. Mér sýnist nú fortíðarvandinn fara stórkostlega vaxandi ef hann er kominn á það stig að menn snúi sér að því að fara eftir þingsköpum sem jafnvel hæstv. iðnrh. hlýtur að vita að eru fallin úr gildi og eiga ekki að notast hér við stjórnun þingsins. Þess vegna vona ég að þetta gerist aldrei aftur þegar menn ætla að leiðrétta það að ekki sé verið að fara eftir þingsköpum heldur eftir samkomulagi sem er fyrir utan þingsköp og rúmast þar ekki. Það eru aðeins tvær heimildir til í þingsköpum varðandi þessar umræður, annaðhvort hálftíma umræða eða frjáls umræða. Það er verið að taka rétt af þingmönnum ef farið er út fyrir þetta. Það breytir engu hvað menn ræða í skrifstofu forseta þar um.
    En ég vil aðeins undirstrika að ég óska eftir skýru svari frá hæstv. forseta um það hvort hann ætlar að notast í framtíðinni við þau þingsköp sem eru í gildi nú og verða í gildi í framtíðinni eða hvort hann ætlar að notast við þingsköp sem voru í gildi fyrir 1985.