Sementsverksmiðja ríkisins

85. fundur
Fimmtudaginn 20. febrúar 1992, kl. 10:40:00 (3622)


     Fyrirspyrjandi (Ingibjörg Pálmadóttir) :
    Herra forseti. Ég þakka hæstv. iðnrh. svörin. Í svörum hans kom ekkert fram að mínu mati sem réttlætir sölu fyrirtækisins. Hæstv. ráðherra telur að nýtt fé muni koma inn í fyrirtækið og verði því til góða. Nú er Sementsverksmiðjan ekki í fjárþörf þannig að það eina svar sem var gildandi er að mínu mati ekki gilt. Þannig að í upphafi skyldi endirinn skoða og ég minni á það að innan tíðar ganga í gildi ný lög þar sem útlendingar geta keypt hlutafé í íslenskum fyrirtækjum að undanskildum sjávarútvegsfyrirtækjum. Það eitt finnst mér líka vera íhugunarefni. Ég tel því að svör ráðherra hafi ekki gefið neitt til kynna sem réttlæti sölu á þessu einokunarfyrirtæki.