Matthías Bjarnason
:
Herra forseti. Ég þakka fyrirspyrjanda þessa fsp. og að hreyfa þessu máli hér á Alþingi. Hins urðu svör hæstv. viðskrh. mér vonbrigði. Hann skipaði nefnd í fyrri ríkisstjórn til þess að kanna ástand og horfur strjálbýlisverslunar. Það nefndarálit hef ég séð og spurt um á þingi hvað ætti að gera við. Ekkert hefur gerst í þessum málum og ástandið fer sífellt versnandi.
Ég verð að taka undir með hv. 2. þm. Austurl. varðandi álögur á strjálbýlisverslunina. Það er eini árangurinn sem hefur náðst því miður og það er kominn tími til, hæstv. viðskrh., að það sé eitthvað gert annað en að kanna og kanna og líta á eða gleyma nefndarálitum sem þegar hafa legið fyrir allt of langan tíma án þess að neitt hafi verið gert.