Verðmunur á nauðsynjavörum

85. fundur
Fimmtudaginn 20. febrúar 1992, kl. 11:12:00 (3638)


     Hjörleifur Guttormsson :
    Virðulegur forseti. Þegar borin eru saman svör hæstv. viðskrh. og væntingar hv. 5. þm. Austurl. þá sýnist mér ekki vera eftir neinu að bíða að hefja vinnu að þeirri lagasmíð sem hv. þm. var að boða. Og mér sýnist það vera nærtækt að hv. þm. Alþfl. með ráðherrum sínum setjist á rökstóla hið fyrsta til þess að leggja drög að þessari löggjöf. Ég vona að það verði gert fljótlega og við sjáum ávextina hér inni í þingsölum.