Vandi rækjuiðnaðarins

85. fundur
Fimmtudaginn 20. febrúar 1992, kl. 12:49:00 (3669)

     Sjávarútvegsráðherra (Þorsteinn Pálsson) :
    Herra forseti. Ég vil í tilefni af ummælum hv. fyrirspyrjanda taka undir það sjónarmið að það er ekki ólíklegt að við verðum að taka mjög til athugunar hvort ekki er nauðsynlegt að koma á einhvers konar úreldingu í fiskvinnslu með svipuðum hætti og við höfum komið á að því er útgerðina varðar. Ég er þeirrar skoðunar að ef ætlunin er að gera þær ráðstafanir sem treysta undirstöður rekstrar í sjávarútvegi til lengri framtíðar geti það verið mikilvægur þáttur í slíkum aðgerðum að koma slíkri úreldingu fram. Þess vegna tek ég undir það sjónarmið sem fram kom hjá hv. fyrirspyrjanda að þetta kemur vel til athugunar við þá skoðun sem nú fer fram á úrræðum til þess að mæta þessum gífurlega vanda sem við stöndum frammi fyrir.