Háskólinn á Akureyri

89. fundur
Miðvikudaginn 26. febrúar 1992, kl. 14:52:00 (3776)

     Jóhannes Geir Sigurgeirsson (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég þakka svar hæstv. sjútvrh. En ég vil í þessu sambandi leggja áherslu á það að staðið verði við þær ákvarðanir sem búið var að taka varðandi þann bát sem fórst, að skip verði gert út frá Akureyri, í tengslum við háskólann þar, og að það verði séð fyrir því að sú útgerð nýtist fyrir rannsóknaþátt Háskólans á Akureyri.