Tilkynning um atkvæðagreiðslu

91. fundur
Fimmtudaginn 27. febrúar 1992, kl. 12:15:00 (3817)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Forseti er sammála hv. 2. þm. Vestf. að öðru leyti en því að forseti lítur á þetta sem einstök mistök og hvarflar ekki að henni að slíkt sé tíðkað hér að staðaldri af hv. þm. Það hvarflar ekki að forseta að hv. þm. séu ekki ábyrgari en svo í athöfnum sínum og gjörðum. Hitt er annað mál varðandi slíka töflu að þá hefur það vissulega verið rætt, og var rætt í forsætisnefnd þegar verið var að undirbúa atkvæðagreiðslukerfið á sl. sumri, að setja hana upp hér í þingsalnum. Það er bæði mikið mál og mikill kostnaður við að koma slíku upp en það hefur verið í athugun. Forseti vill aðeins geta þessa.