Sjávarútvegsráðherra (Þorsteinn Pálsson)
:
Herra forseti. Það er vissulega rétt að ýmis atriði þarf að meta þegar um er að ræða mat á fjárhagslegu tjóni inn í framtíðina. Það eru sannarlega atriði eða álitamál tengd þeim tillögum sem hér eru í frv., til að mynda um aldursmörk bóta. En ég fagna því ef ég hef misskilið hv. þm. að því er varðar hugmyndir sem stundum eru uppi um það að skaðabótaréttur eigi að upphefja mismunun sem fyrir hendi er eða mismunandi aðstæður sem fyrir hendi eru sem torvelt er að sjá að unnt sé að upphefja á grundvelli skaðabótareglna þó að menn almennt séð séu á því að þá mismunun þurfi að upphefja. Ég fagna því ef ég hef misskilið hv. þm. að þessu leyti.