Flugmálaáætlun 1992--1995

94. fundur
Miðvikudaginn 04. mars 1992, kl. 15:57:00 (3973)

     Forseti (Gunnlaugur Stefánsson) :
    Ég vil vekja athygli hv. þm. á því að nú er klukkan fjögur og ætluðum fundartíma er lokið. Á mælendaskrá er enn hæstv. samgrh. og mig langar þá til að spyrja hann að því hvort hann hafi ákveðið að halda langa ræðu eða stutta ræðu. ( Landbrh.: Hann ætlar að reyna að flýta sér.) ( StG: Má ég ekki veita andsvar?) Nei, ég er að reyna að haga hér þingstörfum svo vel fari þannig að við getum gert ráð fyrir að fundur standi þar til klukkan er stundarfjórðung yfir fjögur eða svo.