Þorskeldi

95. fundur
Fimmtudaginn 05. mars 1992, kl. 11:15:00 (3986)

     Össur Skarphéðinsson :
    Virðulegi forseti. Hv. þm. Tómas Ingi Olrich gerði hér að umræðuefni þátttöku einkafyrirtækja í rannsóknum og þróunarstarfi. Af því tilefni vil ég að fram komi hér að sennilega hefur engin grein veitt jafnmiklum hluta af því fjármagni sem hún hefur haft til umráða til rannsókna eins og einmitt þessi unga grein, fiskeldi. Staðreyndin er nefnilega sú að þær rannsóknir, sem farið hafa fram í fiskeldi og eru þrátt fyrir allt tiltölulega umfangsmiklar og hafa skilað ágætum árangri þrátt fyrir þá erfiðu stöðu sem greinin er í, hafa að verulegu leyti verið fjármagnaðar af fyrirtækjum og af áhættufjármagni sem fyrirtækjum hefur tekist að draga inn til greinarinnar.
    Ég ætla ekki að lengja þessa umræðu mikið, virðulegi forseti, en ég vil samt geta þess að frá því að við fjölluðum hér síðast um þessa tillögu hafa komið fram í rannsóknum innan lands afar mikilsverðar upplýsingar sem varða framtíð þorskeldis og hafbeitar á þorski hér við land. Staðreyndin er sú að við höfum gjarnan borið okkur saman við Norðmenn og höfum litið til Norðmanna þegar við höfum verið að tala um fiskeldi, ekki síst þorskeldi. Norðmenn hafa náð góðum árangri á sviði þorskeldis. Menn hafa stundum gert því skóna að við mundum ekki geta náð svipuðum árangri hér við strendur Íslands hvað varðar hafbeit á þorski vegna þess að við Noreg hafa verið þekktir mjög staðbundnir stofnar. Þar hafa verið stofnar í innfjörðum og við strendur Noregs sem vitað er að hafa verið mjög staðbundnir og menn hafa þess vegna sagt sem svo: Ef við förum í umfangsmikið þorskeldi og sleppum þorskungviði þá er líklegt að sá fiskur vaxi upp tiltölulega nærri sleppistað og þess vegna verði endurheimtur giska góðar. Á móti hafa menn sagt: Hér við land eru ekki þekktir staðbundnir stofnar þorska.
    Nú mjög nýlega, ég held í síðustu viku, voru birtar niðurstöður rannsóknar á merkingum þorskfiska við Austfirði. Þá kom fram, sem menn vissu ekki áður, að þar er um að ræða stofna sem eru verulega staðbundnir. Þar er um að ræða fiska sem merktir eru og veiðast allnokkru stærri og allnokkru síðar mjög nærri sleppistað. Þessar upplýsingar eru afskaplega mikilvægar vegna þess að þær gefa vísbendingu um það að hafbeit á þorski hér við Ísland gæti skilað miklu meiri árangri en við héldum þegar við vorum að véla um þessi mál fyrir örfáum árum, örfáum missirum og jafnvel bara þegar við vorum í umræðu hér um þessi mál fyrir örfáum vikum. Þetta vildi ég, virðulegi forseti, að kæmi hér fram vegna þess að það undirstrikar enn frekar en áður mikilvægi þess að stjórnvöld taki rækilega á með okkur sem höfum staðið í fiskeldi til þess að hnika þessu áfram.