Flm. (Anna Ólafsdóttir Björnsson)
(andsvar)
:
Virðulegi forseti. Mig langar að þakka undirtektir hv. ræðumanns. Vegna þess sem fram kom í hans máli, að hann teldi eðlilegt að þessari umræðu yrði ekki lokið án þess að við hefðum ráðherra hér til staðar til að hafa með í umræðunni, þá hafa fleiri komið fram með slíkar óskir. Ég hef formlega farið þess á leit við hæstv. forseta að þessari fyrri umræðu málsins muni ekki ljúka öðruvísi en svo að við höfum hér ráðherra til þess að ræða við. Hefur hún tekið vel í þá málaleitan þannig að ég vil bara upplýsa það að þessi umræða mun halda áfram þegar þeir eru komnir aftur til starfa.