Laun forseta Íslands

96. fundur
Föstudaginn 06. mars 1992, kl. 14:58:00 (4084)


     Ingi Björn Albertsson :
    Hæstv. forseti. Ég ætla ekki að ræða þetta mál efnislega hér. Hins vegar vil ég koma inn á það til hvorrar nefndarinnar beri að vísa málinu. Það er ekki í eiginhagsmunaskyni vegna þess að ég sit í báðum nefndunum. En ég tel engan vafa að þessu máli beri að vísa til efh.- og viðskn. þar sem hér er um skattamál að ræða. Í mínum huga er enginn vafi þar á ferðinni.