Ingi Björn Albertsson
(um þingsköp)
:
Herra forseti. Fyrir allnokkru síðan bað ég hér um orðið. Síðan þá báðu a.m.k. þrír síðustu ræðumenn um orðið á eftir mér. Ég óska því eftir að fá það upplýst úr forsetastóli hvort hér hafi verið tekið upp nýtt verklag, hvort mönnum sé ekki lengur veitt orðið í þeirri röð sem þeir biðja um það.