Jóhannes Geir Sigurgeirsson
(andsvar)
:
Virðulegi forseti. Ég verð að viðurkenna að ég geri mér ekki alveg ljóst hvernig það kerfi á að ganga fyrir sig sem hv. 3. þm. Vesturl. lýsti hér áðan. Mér sýnist að með því að hætta allri verðjöfnun, flutningsjöfnun í gegnum sameiginlegan sjóð, sé enn aukið á þá hættu, sem þó er í því frv. sem hér er, að olíuafgreiðslu verði hreinlega hætt víða úti um land þar sem óhagkvæmast er. Ég skildi hann þannig að verðjöfnun ætti að vera innan einstakra félaga. Það er líka órökrétt að ætla að það félag sem er með mesta dreifingu út um land í dag hafi í gegnum þá frjálsu samkeppni, sem þingmaðurinn boðar, burði til þess að ná hærri markaðshlutdeild á höfuðborgarsvæðinu.
Í þriðja lagi á ég eftir að sjá þá erlendu aðila sem eru tilbúnir til að leggja meiri peninga í olíufélög á Íslandi til að verðjafna dreifinguna út um land. Þvert á móti hygg ég að þeir sem eru tilbúnir til þess að koma inn með erlent fjármagn muni hugsa þveröfugt.