Afgreiðsla þingmála stjórnarandstöðunnar

99. fundur
Miðvikudaginn 11. mars 1992, kl. 13:39:00 (4184)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Forseti vill byrja á því að leiðrétta hér það blað sem forseti las upp um fjarvistarleyfi í upphafi þessa fundar og taka á sig þá sök að hv. 6. þm. Reykv. er með fjarvistarleyfi í dag. Forseta hafði láðst að koma því til skila þannig að hennar nafn var ekki á þeim lista sem forseti las áðan. Það leiðréttist hér með.