Forseti (Salome Þorkelsdóttir)
:
Það hefur komið fram skýring frá hv. formanni efh.- og viðskn. og forseti væntir þess að hv. þm. geti fallist á þá skýringu enda kemur ekki fram í nál. að þetta frv. bíði afgreiðslu þar til þessar upplýsingar liggja fyrir. Forseti væntir þess að hv. þm. sætti sig við þann úrskurð að nú fari fram atkvæðagreiðsla um málið.