Auglýsingakostnaður í dagblöðum og sjónvarpi

100. fundur
Fimmtudaginn 12. mars 1992, kl. 10:40:00 (4220)

     Össur Skarphéðinsson :
    Frú forseti. Það hefur komið fram í umræðum í þessum sölum að þingmenn Alþb. hafa mikinn áhuga á þeim auglýsingum sem hið opinbera kaupir hjá Alþýðublaðinu. Þess vegna er afskaplega fróðlegt að líta á þær tölur sem Hvíta húsið hefur eytt í auglýsingar hjá þessu dagblaði og bera þær saman við annað mjög merkt dagblað, Þjóðviljann. Þá kemur í ljós að Hvíta húsið hefur fyrir hönd fjmrn. auglýst í Þjóðviljanum árið 1990 fyrir 452 þús. kr. en í Alþýðublaðinu fyrir einungis 180 þús. Fyrir hönd ríkisskattstjóra hefur Hvíta húsið auglýst í Þjóðviljanum fyrir 2,1 millj. en í Alþýðublaðinu einungis fyrir 1,1 millj. Fyrir tímabilið 1. jan. til 15. maí 1991 er sama mynstur a ferðinni. Þar hefur Hvíta húsið auglýst fyrir hönd fjmrn. fyrir 180 þús. kr. í Þjóðviljanum en fyrir helmingi minna í Alþýðublaðinu. Fyrir hönd ríkisskattstjóra á sama tímabili hefur Hvíta húsið auglýst í Þjóðviljanum fyrir 830 þús en fyrir tæpar 600 þús. kr. í Alþýðublaðinu. Þannig er ljóst að fyrir hönd fjmrn. og ríkisskattstjóra hefur Hvíta húsið auglýst fyrir um það bil tvöfalt þá upphæð í Þjóðviljanum sem það hefur auglýst í Alþýðublaðinu. Þetta ætti að vera nokkur fróðleikur fyrir hv. þm. Alþb., ekki síst hv. þm. Guðrúnu Helgadóttur.