Veiting ríkisborgararéttar

101. fundur
Fimmtudaginn 12. mars 1992, kl. 15:02:01 (4340)

     Sjávarútvegsráðherra (Þorsteinn Pálsson) :
    Frú forseti. Hér liggur fyrir á þskj. 456 frv. til laga um veitingu ríkisborgararéttar. Þar er lagt til að tólf tilgreindum útlendingum verði veittur íslenskur ríkisborgararéttur. Þeir fullnægja allir þeim almennu skilyrðum sem allshn. hefur sett varðandi veitingu ríkisborgararéttar. Því er hér gerð tillaga um að þeir fái íslenskan ríkisborgararétt. Sú hefð hefur skapast að flytja tvö frumvörp um veitingu ríkisborgararéttar á hverju þingi. Þetta þing afgreiddi slíkt frv. fyrir jólaleyfi þingmanna. Nú er síðara frv. flutt með tillögum um þá útlendinga sem þegar uppfylla hin almennu skilyrði.
    Ég legg svo til, frú forseti, að þessu máli verði vísað til 2. umr. og hv. allshn. að lokinni þessari umræðu.