Veiting ríkisborgararéttar

101. fundur
Fimmtudaginn 12. mars 1992, kl. 15:07:00 (4342)

     Össur Skarphéðinsson :
    Virðulegi forseti. Ekki skal ég nema gott eitt segja um þá málaleitan fjölskyldunnar Danilo að fá hér íslenskt ríkisfang. Hins vegar verð ég að finna að þeim máta sem hv. þm. Guðrún Helgadóttir hefur á því að koma þessari ósk sinni á framfæri, þ.e. að gera það hér úr þessum sölum. Ég hefði talið það eðlilegt að hún hefði reynt að ræða við þingmenn nefndarinnar. Ég tók eftir því að í máli hennar hér áðan kom fram að hún hefði gert það. Hún hefur ekki rætt við þennan þingmann og ekki varaformann allshn. þar með. En hins vegar skal ég lýsa því yfir að ég skal með glöðu geði beita mér fyrir því að þessi málaleitan fái jákvæða afgreiðslu.