Afgreiðsla lagafrumvarpa í tengslum við EES-samninginn

104. fundur
Miðvikudaginn 18. mars 1992, kl. 13:47:00 (4476)


     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Forseti getur ekki tímasett það hvenær megi vænta þess að þessum störfum ljúki, en það fer náttúrlega eftir því hvernig gangur mála verður. Þær upplýsingar sem koma fram í þessari fundargerð eru byggðar á þeim gögnum sem embættismenn þingsins höfðu aflað sér með því að sitja fund þar sem fjallað var um undirbúning þessara mála.
    Forseti vill gjarnan fá tækifæri til þess að gefa ítarlegri svör með því að lesa yfir fundargerðina en forseti hefur ekki haft tækifæri til þess enn þá en mun gera það og svara þá hv. þm. betur við það tækifæri.