Réttur til veiða í efnahagslögsögu Íslands

108. fundur
Þriðjudaginn 24. mars 1992, kl. 14:11:00 (4690)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Komið hefur fram ósk frá hv. 3. þm. Vesturl. um að nefnd taki málið til meðferðar á milli 2. og 3. umr. og þykir forseta ekki óeðlilegt að orðið verði við þeirri ósk og mun bera það undir fundinn í lok þessarar atkvæðagreiðslu.