Ólafur Þ. Þórðarson
:
Herra forseti. Mér var það mikið ánægjuefni þegar það frv. var flutt sem hér er verið að greiða atkvæði um og taldi að viðskiptafrelsi yrði meira en verið hefur og gladdist yfir. Nú er það svo að ég fæ mikið af bréfum frá Verslunarráði Íslands, það hefur verið í gegnum tíðina þó ég skrifi þeim lítt, og aldrei þessu vant gerðist það að ég fékk bréf sem ég er innilega sammála. Þar vöktu þeir athygli á því að þær brtt. sem hér er verið að leggja til eru ekki til bóta, heldur alveg þveröfugt og má undarlegt heita. En það er kannski ekki skrítið þegar horft er á allan þann skara sem hefur haft áhrif á nefndina þó hún hafi eitthvað ruglast í ríminu. Ég segi nei.