Viðhald opinberra bygginga

110. fundur
Fimmtudaginn 26. mars 1992, kl. 11:18:00 (4778)

     Jóhannes Geir Sigurgeirsson :
    Virðulegi forseti. Ég vil taka undir lokaorð hæstv. forsrh. þar sem hann sagði að nú væri kannski ástæða til þess á næstu árum að stjórnvöld sneru sér frekar að því að endurbyggja og laga það húsnæði sem fyrir er í stað þess að byggja nýtt því að eins og hann sagði hefur verið byggt ærið húsnæði á landinu á undanförnum árum og kannski helst hér á þessu svæði þar sem hinar opinberu stofnanir eru. En það er nú samt svo að ráðamenn á hverjum tíma hafa frekar tilhneigingu til að byggja nýtt og því miður virðist hæstv. núv. ríkisstjórn ætla að falla í sömu gryfju. Ég man ekki betur en fyrir liggi rúmlega viku gömul ákvörðun ríkisstjórnarinnar um að byggja enn eitt skrauthýsið og nú yfir Hæstarétt í stað þess að kanna hvort ekki sé til húsnæði í eigu ríkisins eða annarra sem væri hentugra en nýbyggingar á vegum ríkisins meðan staðið er að viðhaldi annars húsnæðis eins og raun ber vitni.