Skipulag á hálendi Íslands

110. fundur
Fimmtudaginn 26. mars 1992, kl. 11:36:00 (4786)

     Umhverfisráðherra (Eiður Guðnason) :
    Virðulegi forseti. Ég vil biðja hv. þm. Jóhannes Geir Sigurgeirsson að spara sér gífuryrðin um miðstýrða forsjárhyggju sem mér sýnist í þessu tilliti vera heldur innihaldslítið og kannski ekki mjög merkilegt slagorð. Ef við viljum vernda hálendið, sem ég held að ekki sé ágreiningur um, þá verða að vera samræmdar reglur um það hvernig hagað sé skipulagi og byggingarframkvæmdum. Við viljum áreiðanlega ekki láta það viðgangast að menn byggi þau hús sem þeir kjósa, þar sem þeir kjósa, þegar þeir kjósa og eins og þeir kjósa. Mannaumferð fylgir úrgangur og rusl. Þess eru dæmi að menn hafi byggt sér skála á hálendinu og sett þar upp þúsund lítra bensín- eða olíugeyma, kannski án þess að réttur umbúnaður sé þar í kring og ráðstafanir til varnar mengunaróhöppum. Viljum við það? Viljum við ekki setja um þetta reglur? Ég vil það og ég held að við viljum það flest. Það kann að vera að á því séu einhverjar undantekningar en ég held að mikill þorri fólks vilji að um þetta gildi ákveðnar og sanngjarnar reglur. Það er áreiðanlegt að af þessum 400 skálum sem taldir eru á hálendinu eru margir næstum því rústir einar, hafa ekki

verið notaðir. Þetta þarf auðvitað að hreinsa burt. Þetta eru lýti á ásjónu landsins. Það getur líka vel verið að mönnum sýnist sitthvað um að það þurfi að skapa heimild til að gera það þegar eignarréttur er kannski ókunnur eða vafasamur. Ég held að við komumst ekki hjá því að setja svona reglur bæði að því er varðar t.d. vegagerð og línulagnir. Menn geta auðvitað ef þeir vilja kallað það miðstýrða forsjárhyggju í miklum fyrirlitningartón. En ég held að við komumst ekki hjá því að hafa reglur.