Össur Skarphéðinsson
(andsvar)
:
Virðulegi forseti. Þetta eru gagnmerkar umræður sem hér fara fram. En eftir að hafa hlustað á ræðu hv. 14. þm. Reykv. geri ég mér ekki grein fyrir því hvort þingmaðurinn er með eða á móti þessari tillögu sem hér liggur fyrir og mér þætti vænt um að sú afstaða kæmi skýrt fram.