Utanríkismál

114. fundur
Þriðjudaginn 31. mars 1992, kl. 16:39:00 (4922)

     Kristín Einarsdóttir (andsvar) :
    Virðulegur forseti. Hv. 7. þm. Reykn. sagði að þeir fyrirvarar væru ekki enn þá komnir í ljós. Við erum komin með samninginn í hendurnar. Það stendur í honum að ekkert megi setja í þann samning sem mismuni eftir þjóðerni. Þess vegna er ekki hægt að samþykkja það frv. t.d. sem hann ásamt öðrum hefur lagt fram hjá þinginu þar sem það mismunar. Hann hlýtur einnig að vita það að EES er ekkert sem Íslendingar munu búa við um neina framtíð ef það verður að veruleika. Ég held að rétt sé að fólk fari að taka blinkurnar frá augunum og hugi að öðrum kostum en Evrópubandalaginu. Það verður að líta til annarra átta og hætta að vera eins og hestur með blinkur sem ekki sér til hliðanna og neita að horfast í augu við þá staðreynd að heimurinn er miklu stærri en Evrópubandalagið með 12 ríkjum úti í Evrópu.