Forseti (Salome Þorkelsdóttir)
:
Hv. 5. þm. Vesturl. hefur nú þegar talað tvisvar í þessu máli eins og fyrirspurnatímar gera ráð fyrir. En hann telur sig þurfa að bera af sér sakir og forseti á erfitt með að neita honum um það. Væntanlega kemur þá í ljós að hann hafi haft ástæðu til þess og tekur hann þá til máls.