Jöfnun á húshitunarkostnaði

116. fundur
Fimmtudaginn 02. apríl 1992, kl. 12:58:00 (5059)

     Pétur Bjarnason :
    Virðulegi forseti. Ég þakka fyrirspyrjanda fyrir að hafa komið með þessa fsp. hér og fyrst og fremst ítreka nauðsyn jöfnunar á húshitunarkostnaði landsmanna. Þarna er um að ræða mjög verulegt misvægi sem nauðsynlegt er að leiðrétta eins og kveðið er á um í málefnasamningi ríkisstjórnarinnar. Og ég minnist þess að einmitt Sjálfstfl. á Vestfjörðum hafði þetta sérstaklega á stefnuskrá sinni fyrir síðustu kosningar eins og reyndar allir flokkar. Ég vona að viðbrögð hv. 3. þm. Vestf. í þessu máli og við þessu svari verði þau að hann beiti sér sérstaklega í sínum flokki og í ríkisstjórninni til þess að staðið verði við þau fyrirheit sem gefin eru í stjórnarsáttmálanum. Hérna er um að ræða mjög mikið réttlætismál sem nauðsyn er að unnið verði að. Ég treysti því að hann fylgi því eftir í sínum flokki.