Norræna ráðherranefndin 1991--1992

117. fundur
Fimmtudaginn 02. apríl 1992, kl. 17:25:00 (5087)


     Hjörleifur Guttormsson (andsvar) :
    Virðulegur forseti. Ég kannast við það sem hér er bætt við. Sennilega hef ég verið á fundi í kjörnefnd þegar þetta uppgjör varðandi fulltrúa í kjörnefnd fór fram eða tillaga Íslandsdeildar var til umræðu í deildinni. Ég hefði fyllilega treyst fulltrúa Kvennalistans til að skipa þetta sæti, m.a. með þeim rökum sem hún hefur fært fyrir því. Ég heyrði það sem sagt utan fundar að þessi tillaga hefði komið fram og ekki hlotið stuðning í hópnum. Þarna voru þrír tilnefndir en enginn þeirra náði kjöri samkvæmt þessum kapli sem þarna var lagður og ekki kom ég nálægt honum.