Samkeppnislög

119. fundur
Mánudaginn 06. apríl 1992, kl. 13:54:00 (5175)

     Hjörleifur Guttormsson (um þingsköp) :
    Virðulegi forseti. Ég skil hæstv. forseta þannig að það eigi að ganga til atkvæða um málið. Hér var ósk borin upp um það að atkvæðagreiðslu um þetta yrði frestað. Ég óska eftir því að orðið verði við þeim tilmælum þannig að þingflokkar geti rætt um þetta og einnig sé hægt að ræða um málsmeðferðina.