Fulltrúar Alþingis á umhverfisráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Río de Janeiro

119. fundur
Mánudaginn 06. apríl 1992, kl. 14:02:01 (5179)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Vegna þessa máls sem hv. 3. þm. Vesturl. hefur reifað nú vill forseti geta þess að hún staðfesti við blaðamann Morgunblaðsins að borist hefði bréf frá Alþb. þar sem lýst hefði verið andstöðu við það að fyrirhugað væri að senda aðeins tvo fulltrúa frá löggjafarsamkomunni, Alþingi. Að öðru leyti óskar forseti eftir því að geta rætt málið á fundi með formönnum þingflokka eftir að forsætisnefnd hefur komið saman og fjallað um þetta bréf. Það verður væntanlega í hádeginu á morgun.