Kristín Einarsdóttir
(andsvar)
:
Virðulegur forseti. Ég veit að tíminn er naumur en ég vil bara benda á að í 23. gr. þingskapa er talað um að vísa skuli frumvörpum, þingsályktunartillögum og fleiru til nefnda og hafa um það hliðsjón af skiptingu málefna í Stjórnarráðinu. Ég skora því á hæstv. iðnrh. að athuga það til morguns, en þá greiðum við væntanlega atkvæði um frv., hvort ekki sé rétt að vísa málinu til iðnn.