Sala ríkisfyrirtækja og reglur um eignaraðild

120. fundur
Þriðjudaginn 07. apríl 1992, kl. 13:38:00 (5199)


     Jóhannes Geir Sigurgeirsson :
    Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svör hans sem voru að mínu mati ekki nægjanlega greinileg. Það verður einfaldlega að skoða alla þessa umræðu í ljósi þeirra yfirlýsinga stuðningsmanna núv. ríkisstjórnar að ekki sé eingöngu fyrirhugað að breyta um rekstrarform. Menn tala fullum fetum um einkavæðingu og sölu ríkisfyrirtækja. Nú síðast í blöðum í dag ræða menn um að selja útlendingum Póst og síma. Menn gjalda allan varhug við þessu máli og gera þá kröfu að málið sé skoðað til enda. Gagnvart þeim ummælum hæstv. viðskrh. að það sé ekki talað um að selja hlutabréf bankanna heldur hugsanlega að afla nýs fjár með sölu hlutabréfa þá er það bara hin hliðin á sama peningnum því það þýðir náttúrlega að nýir aðilar geta eignast hlutdeild í bankanum sem nemur því sem selt er á hverjum tíma.