Menntamálaráðherra (Ólafur G. Einarsson) :
Herra forseti. Það er kannski að vonum að spurningar vakna varðandi Evrópskt efnahagssvæði í sambandi við þetta mál. Nú er það ekki enn orðið staðreynd. Eins og hv. þm. Hjörleifur Guttormsson nefndi segir í athugasemdum með frv. að við samningu frv. hafi ,,m.a. verið stuðst við dönsk lög sem sett voru til þess að auðvelda fullgildingu danskra stjórnvalda á ákvæðum samningsins frá 24. okt. 1990 og löggjöf Evrópubandalagsins um gagnkvæm starfsréttindi.`` Þeir norrænu samningar sem við höfum gert á vettvangi hins norræna samstarfs gilda enn. Eins og við vitum hafa komið upp álitamál um það að hve miklu leyti þeir þurfa að fara í endurskoðun ef af samningum um Evrópskt efnahagssvæði verður. Ég kann ekki að svara þeirri spurningu hvort lögbundin starfsréttindi muni gilda áfram eða hvort sú stefna sem farin er innan Evrópubandalagsins verði ráðandi. Því miður þekki ég það ekki. En ég skil ræðu hv. þm. Hjörleifs Guttormssonar þannig að hann styðji málið og ég þakka það.