Stofnun sjávarútvegsskóla

122. fundur
Fimmtudaginn 09. apríl 1992, kl. 11:15:00 (5325)


     Einar K. Guðfinnsson :
    Virðulegi forseti. Ég vil beina því til hæstv. menntmrh. að um leið og þessi athugun á hagræðingu í framhaldsskólakerfinu fer fram verði alveg sérstaklega hugað að því sem mér finnst eðlilegt, að flytja starfsemi þessara skóla sem hér um ræðir, Véskóla Íslands, Stýrimannaskólans í Reykjavík og Fiskvinnsluskólans í Hafnarfirði, út á land. Hér er um að ræða skóla fyrir atvinnulíf landsbyggðarinnar og það er alveg ljóst að mikill meiri hluti nemenda, til að mynda í Fiskvinnsluskólanum, kemur af landsbyggðinni og öll rök mæla vitaskuld með því að skóli af þessu taginu sé staðsettur á landsbyggðinni þar sem hann á heima í nágrenni við atvinnulíf landsbyggðarinnar sem hann á að þjóna. Ég tel að þessir skólar staðsettir á höfuðborgarsvæðinu hafi verið börn síns tíma og núna þegar tilefni þykir til að endurskoða starfsemi skólanna, hvort sem það gerist með því að steypa þeim saman í einn eða með einhverjum öðrum hætti, þá standi full efni til þess að flytja þessa starfsemi út á land og koma henni fyrir þar sem hún á heima.