Inntaka nýnema í framhaldsskóla og háskóla

122. fundur
Fimmtudaginn 09. apríl 1992, kl. 11:29:00 (5332)


     Fyrirspyrjandi (Hermann Níelsson) :
    Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. menntmrh. fyrir svör hans. Það kom fram í hans máli að engir hefðu sótt um skólavist við Háskóla Íslands. Mér er kunnugt um það, þar sem ég umgengst mikið ungt fólk, að ungt fólk, sem útskrifaðist sem stúdentar á haustönn, um áramótin, og fólk sem hyggst ljúka stúdentsprófi núna með vorinu, hafi þegar sótt um inngöngu í Háskóla Íslands vegna þeirrar óvissu sem hefur verið ríkjandi af því að forsvarsmenn Háskóla Íslands hafa látið að því liggja eins og ég sagði áðan, að kannski yrði brugðist við niðurskurðinum á þann hátt að taka ekki við nýnemum. Ég fagna því að hæstv. menntmrh. hefur eytt þeirri óvissu.
    Í sambandi við framhaldsskólana er það slæmt fyrir þjóðfélagið að geta ekki boðið fólki upp á öryggi á viðkvæmum tíma í lífi þess. Þess vegna hefði verið gaman að spyrja hæstv. menntmrh. hvort hans skilningur sé sá að framhaldsskólar á Íslandi séu öllum opnir eins og segir í lögum um slíka skóla.