Endurskoðun laga um grunnskóla og framhaldsskóla

122. fundur
Fimmtudaginn 09. apríl 1992, kl. 11:48:00 (5339)


     Pétur Bjarnason :
    Frú forseti. Mér fannst hæstv. ráðherra í rauninni ekki svara fyrirspurnunum. Spurt var hvers vegna ákveðið hefði verið að hafa ekki fulltrúa frá samtökum í nefndinni. Hann sagði ekkert hvers vegna, það væri fróðlegt ef hann gæti skýrt það betur. Mér fannst líka athyglisvert að hann lýsti því yfir að gagnrýnt hefði verið harðlega að ekki hefði verið haft samráð við sveitarfélögin á síðasta þingi. Samt er nákvæmlega sama leið farin og ekki haft samráð við sveitarfélögin. Þetta finnst mér svolítið sérkennilegt. Hins vegar er vafalaust rétt að íhuga þarf mjög vandlega hvort sveitarfélögin eigi að hafa vaxandi áhrif á málefni skólanna þar sem við lög um verkefnaskiptinguna vantaði mjög á að skýrt væri kveðið á um hvernig þeim málum yrði háttað.