Forseti (Salome Þorkelsdóttir)
:
Áður en gengið er til dagskrár vill forseti geta þess að undirritað hefur verið samkomulag um beinar sjónvarpssendingar frá Alþingi og það er einmitt á fundinum í dag sem útsendingar hefjast. Þessi fundur markar því á vissan hátt þáttaskil í sögu þingsins og það er von mín að þessi nýbreytni mælist vel fyrir og megi verða til þess að betri tengsl skapist milli þings og þjóðar. Hér veitist innsýn í þingstörfin á annan hátt en við hinar formföstu útvarpsumræður sem mælt er fyrir um í þingsköpum með takmörkuðum ræðutíma.
Enn sem komið er ná þessar útsendingar ekki til allra landsvæða en stefnt mun að því að útvíkka dreifingarkerfið í náinni framtíð.
Rétt er að taka það fram að sjónvarpað verður óslitið frá upphafi fundar til loka hans og myndavélinni eingöngu beint að ræðustólnum.
Ég ítreka enn á ný óskir mínar um að þessi nýjung sem hér er tekin upp megi verða þinginu til heilla og til að efla skilning þjóðarinnar á störfum þess.
Áður en gengið er til dagskrár vill forseti tilkynna að hér mun hefjast utandagskrárumræða sem stendur í allt að hálftíma. Hún fer fram að beiðni hv. 9. þm. Reykv. og er um ráðningu þjóðminjavarðar. Utandagskrárumræðan mun hefjast að lokinni atkvæðagreiðslu hér á eftir.