Forseti (Gunnlaugur Stefánsson)
:
Ég vil við upphaf fundar óska þingmönnum svo og starfsfólki Alþingis gleðilegs sumars. Jafnframt eru þingmenn boðnir velkomnir til starfa á ný eftir nokkurt hlé frá þingfundum. Það er von forseta að þingmenn hafi notið nokkurrar hvíldar og séu vel undirbúnir fyrir fundalotu hins venjubundna lokaspretts þingstarfa.
Áður en gengið er til dagskrár vill forseti geta þess vegna fregna í fjölmiðlum um utandagskrárumræðu um EES-málið og þinglega meðferð þess að áætlað er að sú umræða verði á morgun, þriðjudag.