Forseti (Gunnlaugur Stefánsson)
:
Hv. þm. hefur komið þessari ósk á framfæri við forseta og mun hann verða við þesari beiðni og láta kanna hvað skýrslugerðinni líður og hvenær megi búast við að skýrslan verði lögð fyrir hið háa Alþingi. Hann mun einnig leggja á það áherslu að þessu starfi megi hraða eins og kostur er í ljósi yfirlýsinga hv. þm.